kortagerð, hugbúnaðargerð og ráðgjöf
Hjá Samsýn starfar öflugur hópur sérfræðinga á sviði hugbúnaðargerðar og ráðgjafar í upplýsingatækni. Samþáttun upplýsingakerfa hefur alltaf verið snar þáttur í starfssemi fyrirtækisins og höfum við komið að gerð margra stórra upplýsingakerfa þar sem samþáttun ólíkra kerfa er lykillinn að árangri. Þar má nefna stjórnkerfi neyðarlínunnar 1-1-2, stjórnkerfi Securitas, stjórnkerfi vaktstöðvar siglinga, Landupplýsingakerfi reykjavíkur LUKR o.fl. Samsýn var aðalrágjafi við gerð þessara kerfa og hefur einnig komið að miklu leiti að þjónustu við daglegan rekstur þeirra.
Þjónusta okkar á sviði landupplýsinga spannar allt frá öflun gagna til framsetningar korta hvort sem er á stafrænu formi eða prentuðu.Samsýn hefur um árabil aflað loftmynda með stafrænni myndatöku og eru þessar myndir grunnur að nákvæmum myndkortum og hæðarlíkönum.Eins er útgáfa sérkorta umtalsverður þáttur starfseminnar. Má hér helst nefna kort unnin fyrir fyrirtæki og einstaklinga, bæði prentuð kort og stafræn. Einnig má nefna sérhæfða kortaframleiðslu fyrir GPS leiðsögutæki.
Sölu- og markaðsstjóri Samsýnar veitir frekari upplýsingar um þjónustu okkar.