Námskeið

ArcGIS Server: Vefstjórnun með notkun Microsoft .NET Framework.

Námskeið þetta er hugsað fyrir umsjónarmenn kerfis og fer yfir þær leiðir sem bestar eru til að setja upp ArcGIS Server hugbúnaðinn. 

Námskeið er 3 dagar.

Námskeiðið er hugsað fyrir umsjónarmenn kerfis og fer yfir þær leiðir sem bestar eru til að setja upp ArcGIS Server hugbúnaðinn til að dreifa landupplýsingum innan fyrirtækja eða út á vefinn. 

Farið verður yfir uppbyggingu ArcGIS Server kerfisisns og þá vinnuferla sem heppilegastir eru til að stýra LUK þjónustum, forritum, gögnum, notendum, aðgengi og vélbúnaði.  Sérstök áhersla er lögð á aðferðir til að tryggja afköst kerfisins, öryggi þess og áreiðanleika.

Nánar um Esri námskeið hér

Skráning á námskeið

Hægt er að skrá sig á námskeið með að senda tölvupóst á namskeid@samsyn.is eða hringið í síma 570 0570.

Nálgast má yfirlit yfir öll Esri námskeið hér
Athuga hægt er að óska eftir að ákveðið námskeið verði haldið miðað við að lágmarksfjöldi náist.

Viðskiptavinir