fagmennska, áreiðanleiki og gæði
Samsýn er öflugt og framsækið fyrirtæki á sviði landupplýsingakerfa, kortagerðar og stjórnkerfa fyrir vaktstöðvar á Íslandi. Samsýn var stofnað í febrúar árið 1995 og fagnaði 16 ára afmæli sínu í ár.
Vörur fyrirtækisins og þjónusta ná allt frá stafrænum loftmyndum til sérsniðinna lausna.
Fyrirtækið veitir fjölbreytta þjónustu og meðal verkefna má nefna stjórnkerfi fyrir neyðarlínuna 1-1-2, Securitas og vaktstöð siglinga, kort fyrir GPS leiðsögutæki, Borgarvefsjá, Leiðarvísi Strætó bs, kortavefsjá fyrir Já.is og flotastjórnunarkerfi fyrir alla helstu viðbragðs- og björgunaraðila landsins. Hjá Samsýn starfa 14 manns.
Gagnkvæm virðing og náin samvinna er lykilatriði í daglegu starfi Samsýnar. Hjá Samsýn starfar metnaðarfullur og samhentur hópur sem leggur áherslu á faglega og persónulega þjónustu.
Starfsmenn leita stöðugt leiða til að tryggja áframhaldandi framfarir á öllum sviðum fyrirtækisins. Þeir sem hafa áhuga á að starfa í góðu starfsumhverfi eru hvattir til senda okkur umsókn
Öll Laus Störf
Allir Starfsmenn