Sitewatch - ferilvöktun

Samsýn hefur um árabil unnið að þróun á kerfum fyrir rauntímavöktun á stöðu og staðsetningu farartækja og stýringu á tækjaflotum.  

Afurð þessarar þróunarvinnu, sem hefur miðast við að uppfylla þarfir notenda sem gera miklar kröfur til áreiðanleika og viðbragðsflýtis, er SiteWatch™ ferilvöktunarkerfið.

Með SiteWatch fær notandinn upplýsingar um öll tæki í sínum rekstri sem búin eru ferilvöktun og nákvæma staðsetningu á korti eða loftmynd. SiteWatch er notendavænt vefkerfi og aðgengilegt hvaðan sem er.

notendur

Meðal notenda á SiteWatch ferilvöktunarkerfinu eru:

  • Neyðarlínan 1-1-2
  • Securitas
  • Vaktstöð siglinga
  • Vegagerðin
  • Reykjavíkurborg
  • Orkuveita Reykjavíkur
  • Landsvirkjun
  • Ríkislögreglustjóri og öll lögregluembætti landsins
  • Strætó bs

nánari upplýsingar

Fjöldi tækja sem vöktuð eru með SiteWatch eru nú á fjórða þúsund og fjöldi notenda mörg hundruð.

Vinsamlegast sendu okkur tölvupóst eða hafðu samband í síma 570 0570 fyrir nánari upplýsingar.

Viðskiptavinir