Íslensk leiðsögukort

Frá 2005 hefur Samsýn framleitt íslensk kort fyrir GPS leiðsögutæki og var Samsýn fyrst íslenskra fyrirtækja til að framleiða slík kort. Kortin okkar njóta mikilla vinsælda, bæði hjá vegfarendum og útivistarfólki, og eru notendur þeirra taldir í tugum þúsunda í dag.

GPS leiðsögukort frá Samsýn eru nánast staðalbúnaður í leigu- og bílaleigubifreiðum landsins.


Gögn

Bestu fáanlegar upplýsingar sem völ er á hverju sinni.

Kortin eru samsett úr gögnum Samsýnar, landupplýsingakerfis Reykjavíkur (LUKR) og Landmælinga Íslands. 

Fyrirtækið hefur skuldbundið sig til að þróa kortin áfram og uppfæra staðsetningarupplýsingar reglulega.

 


Nánari upplýsingar

Kortin eru nú fáanleg fyrir Garmin, Lowrance og Medion leiðsögutæki.

Sölu- og markaðsstjóri Samsýnar veitir frekari upplýsingar um leiðsögukort.

Viðskiptavinir