Íslensk eldfjallavefsjá
Íslensk eldfjallavefsjá var opnuð á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember. Um er að ræða gagnvirka vefsíðu og opinbert uppflettirit þar sem finna má yfirlit yfir allar eldstöðvar á Íslandi, alls 32 talsins. Vefsjáin er samstarfsverkefni Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands og Almannavarnardeildar Ríkislögreglustjóra ásamt aðkomu erlendra og innlendra sérfræðinga. Samsýn kom bæði að hönnun á gagnagrunni og vefsíðu. Íslensk Eldfjöll Ljósmynd: Evgenia Ilyin