|
Samsýn ehf. er leiðandi aðili í gerð hugbúnaðarlausna fyrir viðbragðsaðila, björgun, neyðarsímsvörun og öryggisgæslu á Íslandi. Samstarf Samsýnar og björgunaraðila nær aftur til ársins 1994 og síðan þá hefur fyrirtækið þróað kerfi og veitt ráðgjöf fyrir flesta aðila á þessu sviði.
Sá hugbúnaður sem Samsýn ehf. hefur þróað tekur til nær allra þeirra þátta sem þessir aðilar þurfa að taka tillit til við vöktun og björgun og getur skipt sköpum þegar bregðast þarf skjótt við.
Samsýn ehf. hefur lagt mikið upp úr því að starfsmenn skilgreini verkefnin til hlítar svo hægt sé að vinna markvisst að þeim. Það krefst þess að starfsmenn leggi sig fram um að fá sem bestan skilning á verkefninu, eðli þess og þörfum og geti nýtt sér sérfræðiþekkingu sína til að skila því sem aðgengilegustu fyrir viðskiptavini.
Árið 1996 hófst samræmd símsvörun fyrir neyðarnúmerið 1-1-2 á Íslandi. Sama ár var gerður samningur milli Hnit hf og Neyðarlínunnar hf um þróun og innleiðingu hugbúnaðarkerfa fyrir neyðarsímsvörun og boðun viðbragðsaðila. Kerfið RESPONSE 112 er afraksturinn og í dag er kerfið ekki einungis í notkun hjá Neyðarlínunni hf. heldur líka hjá Fjarskiptamiðstöð lögreglu og Björgunarmiðstöð Íslands. Að auki eru hlutar kerfisins í notkun á öllum lögreglustöðvum á SV-horni landsins.
Neyðarsímsvörun á Íslandi getur verið mjög flókið viðfangsefni þar sem að landið er stórt og íbúarnir dreifðir. T.a.m. eru yfir 200 viðbragðsaðilar skráðir í samræmdan gagnagrunn Neyðarlínunnar hf. og því er ljóst að þáttur landfræðilegrar úrvinnslu er mikill þar sem rétt staðsetning atburðar er lykilinn að réttri boðun. Samsýn ehf./Hnit hf. hefur um árabil verið leiðandi aðili í hönnun landfræðilegra upplýsingakerfa og vóg það þungt þegar ákveðið var að ráða Samsýn ehf./Hnit hf. til að þróa kerfi Neyðarlínunnar hf..
Samsýn ehf./Hnit hf. hefur tekið við þróun RESPONSE-112 og þjónustu við Neyðarlínuna hf. og viðbragðsaðila.
Í nýlegri könnun á svartíma nokkurra neyðarsímsvörunarmiðstöðva í Evrópu kom í ljós að Neyðarlínan hf. var á meðal þeirra sem hafði stysta svartímann. Neyðarlínan hf. þakkar þann árangur ekki síst öflugu hugbúnaðarkerfi - RESPONSE 112 kefri frá Samsýn ehf..
|