|
Landupplýsingakerfi Í tengslum við stafræna kortagerð og gagnaöflun hefur þróast hjá fyrirtækinu sérfræðiþekking og reynsla á sviði landfræðilegra upplýsingakerfa og gagnagrunnsvinnslu.
Samsýn ehf. hefur verið ráðgjafi Borgarverkfræðings og veitustofnana Reykjavíkurborgar allt frá upphafi (1988) við uppbyggingu Landupplýsingakerfis Reykjavíkur (LUKR) og auk þess unnið við lausn verkefna í Oracle og SDE gagnagrunnum við miðlun grafískra gagna á veraldarvefinn. Hnit hf. hefur þar að auki aðstoðað fjölda fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga við hagnýtingu landupplýsinga. Fyrirtækið er vel búið vél- og hugbúnaði á þessu sviði. Aðallega er byggt á hugbúnaði frá ESRI, þ.e. ArcInfo, ArcView og SDE.
Helstu verkefni
Uppbygging Landupplýsingakerfis Reykjavíkur (LUKR)
Landupplýsingakerfi Reykjavíkur er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Landssímans um að koma á fót og reka samræmt og samtengt landupplýsingakerfi...
 [Lesa meira]
Uppbygging Landupplýsingakerfis Mílu (Landssímans)
Samsýn ehf. hefur verið ráðgjafi Landssímans í landupplýsingamálum frá árinu 1988. Hnit hf hefur tekið þátt í hönnun og uppbyggingu landupplýsingagagnagrunna...
[Lesa meira]
Uppbygging landupplýsingakerfis Orkuveitu Reykjavíkur
Samsýn ehf. hefur verið ráðgjafi Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og forvera þess í landupplýsingamálum frá árinu 1988...
[Lesa meira]
Borgarvefsjá
Samsýn ehf. hefur verið ráðgjafi fyrir landupplýsingakerfi Reykjavíkur (LUKR) frá upphafi þess árið 1988. Samsýn ehf./Hnit hf.hefur séð um hönnun og uppsetningu...
[Lesa meira]
Landupplýsingakerfi fyrir sveitarfélög
Hvort sem er stór eða smá sveitarfélög þá er aðgengi að upplýsingum lykilatriði, og að allir innan sveitarfélagsins hafi aðgang að samskonar upplýsingum.
[Lesa meira]
Landsvirkjun: Umhverfisstjórnun
Samsýn ehf. sá um að búa til kort af Hrauneyjafossvirkjun og nánasta umhverfi hennar og setja þau ásamt helstu umhverfisþáttum upp í landupplýsingakerfi...
[Lesa meira]
Orkustofnun: Virkjanabanki
Samsýn ehf. hefur verið ráðgjafi OS um gerð svonefnds virkjanabanka, sem er gagnagrunnur þar sem safnað er saman ýmsum upplýsingum um virkjanir og -hugmyndir...
[Lesa meira]
Umferðardeild Borgarverkfræðings: Slysabanki
Samsýn ehf. hefur búið til og viðhaldið gagnabanka um umferðarslys í Reykjavík. Gögnin koma frá Umferðarstofu og eru tengd við Landupplýsingakerfi Reykjavíkur...
[Lesa meira]
Umferðardeild Umhverfis- og Tæknisviðs Reykjavíkur – Umferðarmál og umferðarspár
Samsýn ehf. hefur sinnt ráðgjöf um LUK mál fyrir umferðardeild Borgarverkfræðings, þ.á.m. ýmsar greiningar á gatnakerfinu í borginni...
[Lesa meira]
|