|
Samsýn ehf./Hnit hf. hefur verið leiðandi ráðgjafi á sviði landupplýsingakerfa, gagnavinnslu, öryggisvöktunar, fyrir viðbragðsaðila síðastliðinn áratug.
Einnig komum við að landfræðilegri greiningu þar sem reynsla okkar, þekking á því sviði nýtist vel.
Göngum í skólann
Samsýn hefur útbúið veflausn fyrir skóla þar sem skólabörn merkja inn hvernig þau komu í skólann. Hægt er að velja um nokkra möguleika svo sem gangandi, í bíl, á hjóli, strætó eða annað. Einnig geta nemendur merkt inn þá staði þar sem þeim finnst þeir ekki öruggir á einhvern hátt svo sem vegna mikillar bílaumferðar, erfitt að sjá bílana, enginn stígur o.s.frv..
Útfrá þeim upplýsingum sem safnast er á mjög auðveldan hátt hægt að átta sig á hvort einhverja úrbóta er þörf til að hvetja nemendur til að koma gangandi eða hjólandi í skólann.
Vefur Reykjavíkurborgar gönguleiðir skólabarna
Aksturgreining fyrir Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins.
Unnið var verkefni fyrir Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins þar sem aksturstími út frá slökkvistöðum var kortlagður. Við þessa greiningu var stuðst við ArcGIS hugbúnað með Network Analyst viðbót.
Verkefni fólst í því að finna svæði sem tekur að aka ákveðin tíma út frá hverri slökkvistöð. Var miðað við 4, 5, 6, 7, 8, 9 og 10 mínútur. Einnig var skoðað út frá þessu staðsetning á nýjum stöðvum í framtíðinni. Í greiningunni var tekið tillit til fjölda íbúa sem stöðvarnar þjóna, samspil stöðva innbyrðis.

|