top of page

Snjallsímaforrit fyrir 112


Samsýn ásamt Neyðarlínunni 112 leitaði eftir samstarfi við Háskólann í Reykjavík þar sem nemendur á lokaári í tölvunarfræði kæmu að gerð snjallsímaforrits til að bæta samskiptaleið heyrnarlausra við neyðarnúmerið 112.

Samvinnan hófst í byrjun árs þegar fjórir nemendur í tölvunarfræði tóku að sér verkefnið, þeir Egill Gautur Steingrímsson, Quang Van Nguyen,

Sigmar Bjarni Sigurðarson og Steinar Marinó Hilmarsson.

Samstarf var einkum ánægjulegt og afurð lokaverkefnis góð. Við viljum óska þeim innilega til hamingju með lokaverkefnið og útskrift.

Nýlegt
Eldra
bottom of page