LEIÐSÖGUKORT FYRIR GOLF
Þróun korta fyrir leiðsögutæki heldur áfram. Um síðustu áramót, 2011, kom út ný útgáfa af Samsýnarkorti fyrir GPS leiðsögutæki, í þetta sinn fyrir sérstök Golf GPS-tæki. Samsýn þróaði kortin í tækin fyrir helstu golfvelli landsins.
Golfkortin verða til sölu í Garmin Búðinni, Ögurhvarfi 2, Kópavogi
Sjá nánari upplýsingar hér
FERILVÖKTUN VINNUTÆKJA
Reykjavíkurborg og Vegagerðin hafa um árabil notað SiteWatch ferilvöktunarkerfið fyrir eftirlit og uppgjör á vetrarþjónustu vega og gatna. Með SiteWatch fást rauntímaupplýsingar um framgang snjóruðnings og hálkueyðingar ásamt nákvæmri mælingu á unnum klukkustundum og kílómetrum, sundurliðað á vegi og vegkafla.
Rafrænt eftirlit vetrarþjónustu með SiteWatch hefur sparað háar fjárhæðir í eftirliti og eins hefur það leitt af sér nákvæmara og réttara uppgjör verka.
Reykjavíkurborg er nú að innleiða sama kerfi fyrir eftirlit með sópun gatna og stíga.