Esriesri-Official-Distributor_sRGB

stærsti framleiðandi hugbúnaðar á sviði landupplýsinga í heiminum

Esri

Esri er stærsti framleiðandi hugbúnaðar á sviði landupplýsinga í heiminum. ArcGIS frá Esri er heildstætt kerfi sem býður upp á fjölda möguleika til að skapa og nýta landfræðilega þekkingu og gögn.
 
ArcGIS er öflugt kerfi þar sem hver og einn ætti að finna lausn við sitt hæfi.  Kerfin eru skalanleg og ættu því að henta jafnt fyrir einstaklinga sem stór fyrirtæki og stofnanir.

Hvað er LUK (GIS)?

Landupplýsingakerfi (LUK) eða Geographic Information System (GIS) er samþætt safn af hugbúnaði og gögnum. 
Kerfið er notað meðal annars til að halda utan um og skoða staðbundnar upplýsingar, greina staðbundin tengsl, og líkan staðbundinna ferla.

Nánari upplýsingar um Esri, ArcGIS hugbúnaðinn veitir sölu- & markaðsstjóri Samsýnar

ArcGIS frá Esri hugbúnaðurinn er aðallega byggður á fjórum lausnum:

  • fyrir Desktop
  • fyrir Server
  • fyrir Online GIS
  • fyrir Mobile/Farsíma
ArcGISProducts

ArcGIS fyrir Desktop
Býður upp á öflug tól til að samþætta gögn, framkvæma ítarlegar greiningar, útbúa líkön og setja fram niðurstöður á hágæða kortum. 

Kerfið er mjög skalanlegt og hentar því jafnt fyrir einstaklinga sem stór fyrirtæki og stofnanir.


Nánar um ArcGIS fyrir Desktop hér

 

 

ArcGIS fyrir Server 
Kerfið gerir notandanum kleift að útbúa, vinna og dreifa gögnum í landupplýsingakerfinu gegnum internetið.  Hægt er að framkvæma greiningar og setja niðurstöður fram á hágæða kortum. 
Einn helsti kostur er að gögn eru hýst miðlægt og því hægt að nálgast þau hvaðan sem er.

Nánar um ArcGIS fyrir Server hér


ArcGIS fyrir Online
Tilvalin lausn fyrir þá sem vilja hýsa kort, ritstýra gögnum og öðrum landfræðilegum upplýsingum í gegnum internetið.  Gögn er hýst  í Esri Cloud eða Skýinu og veitir notandanum aðgang að gögnum annarra Esri- og LUKnotenda sem hafa skráð þau og veitt aðgang að þeim.  Athuga að hægt er að aðgangsstýra gögnum sínum fullkomnlega, halda þeim til eigin nota eða veita aðgang fyrir vissa hópa.

Nánar um ArcGIS Online hér

ArcGIS fyrir Mobile

Er tilvalin lausn fyrir fyrirtæki og stofnanir sem eru með fjölbreytta starfsemi. Lausnin getur bæði sparað bæði tíma og dregið úr villu innslætti þar sem svokallað millistig (pappírskort) í gagnauppfærslu dettur út.


Nánar um ArcGIS fyrir Mobile hér

Viðskiptavinir