sérhönnuð kort, þrívíddar kort og öflun gagna
Samsýn býður upp á sérhönnuð kort fyrir stofnanir, fyrirtæki, sveitarfélög og einstaklinga.Við getum annast allt frá öflun gagna til framsetningar kortaefnis hvort sem er á stafrænu formi eða prentað.
Samsýn er endursölu aðili að IS50V gagnasafni Landmælinga Íslands og gagnasafni LUKR.
Gögn okkar telja meðal annars:
Vinsamlegast sendu okkur tölvupóst eða hringdu í síma 570 0570 fyrir nánari upplýsingar um Samsýnar kort.
Um árabil hefur Samsýn tekið loftmyndir hér á landi og eigum við orðið loftmyndir og gögn sem þekja um 1/4 hluta landsins og þar af alla þéttbýlisstaði.
Síðustu loftmyndatökur: 2011: Í sumar kom flugvél frá Blom og náðu þeir að mynda allt samkvæmt pöntun. Má þá helst nefna Þingvelli, Búðarháls, Blöndu, svæði við Grindavík (Eldvörp) og fleira.
Hægt er kaupa einstaka myndir, myndbúta eða stærri svæði einnig bjóðum við upp á loftmyndaþjónustu en með henni er hægt að fá aðgang að loftmyndagrunni Samsýnar í gegnum AutoCAD eða ArcGIS.
Frá og með árinu 2005 hefur öll loftmyndataka verið á stafrænu formi. Það er fyrirtækið Blom Aerofilms sem annast myndatökuna fyrir Samsýn. Starfsemi Blom Aerofilms er vottuð skv. ISO 9001 staðli.
Myndirnar eru teknar á Vexcel UltraCAM-D stafræna myndavél, en sú vél er sérhönnuð til loftmyndatöku. Í henni eru 8 linsur sem hver um sig er stillt á mismunandi bylgjulengd ljóss. Upplausn myndanna er 90 milljón punktar (megapixel).
Vinsamlegast sendu okkur tölvupóst eða hringdu í síma 570 0570 fyrir nánari upplýsingar um loftmyndir.