ArcÍS ráðstefna 2026
- 3 days ago
- 1 min read

ArcÍS ráðstefnan verður haldin fimmtudaginn 8. október í veislusal, Sjálandi, Garðabæ og er því tækifæri að taka daginn frá tímanlega.
Hluti dagskrárinnar verður með breyttu sniði í ár. Auk spennandi erinda frá Esri og Samsýn mun sérfræðingur frá Esri fjalla sérstaklega um tvö mikilvæg viðfangsefni, þar sem kafað verður djúpt í nýjustu möguleika ArcGIS AI og Reality Mapping (3D).
Þetta er einstakt tækifæri til að kynnast því hvernig háþróuð tækni er að umbreyta greiningu, kortagerð og ákvarðanatöku í síbreytilegum heimi.
Við leitum að sjálfsögðu líka að áhugaverðum og vönduðum erindum frá okkar frábæru notendum. Viðfangsefnið þarf að hafa verið unnið að hluta eða öllu leyti í ArcGIS hugbúnaðinum og mikilvægt er að sýna skýrt hvernig hugbúnaðurinn var nýttur í verkefninu.
Erindi skulu vera um 20 mínútur að lengd og gefa innsýn í raunveruleg verkefni, lausnir og árangur með notkun ArcGIS.
Endilega hafið samband við hildur@samsyn.is eða stefan@samsyn.is ef þið viljið taka þátt eða eruð með spurningar.
















