ISN2016 Hnitakerfið og ArcGIS
- 14 hours ago
- 1 min read

Það er orðið æ algengara að gögn séu notuð í ISN2016 hnitakerfinu. Í ArcGIS er hægt að skilgreina það hnitakerfi á gögn og kort.
Til þess að geta varpað gögnum rétt á milli ISN2016 og eldri landshnitakerfa (ISN93 og ISN2004) þarf að setja upp ArcGIS Coordinate Systems Data pakkann. Hann og nýjustu útgáfur af ArcGIS má nálgast á MyEsri svæðinu.
Athugið að þennan pakka þarf að setja upp á Desktop og Server (Enterprise) vélum sem eru notaðar til að varpa gögnum og/eða birta kort með blönduðum hnitakerfum.
Ef diskapláss er til vandræða þá er hægt að takmarka uppsetninguna við ntv2 hlutann af Coordinate Systems Data.
Fyrir nánari upplýsingar eða aðstoð er hægt að senda okkur tölvupóst á netfangið samsyn@samsyn.is eða hafa samband í síma 570 0570.


















