top of page

Framendaforritarar - Laus störf


Við leitum að kraftmiklu, skapandi og skemmtilegu fólki til að ganga til liðs við okkur.

Ert þú rétta manneskjan?


Menntunar- og hæfniskröfur:

• Háskólapróf í verkfræði eða tölvunarfræði, eða önnur sambærileg menntun.

• Reynsla í vefforitun, gjarnan Angular.

• Reynsla í C# og SQL er kostur.

• Hafa metnað og áhuga fyrir hugbúnaðarþróun.

• Frumkvæði, sjálfstæði og góðir samskiptahæfileikar.


Starfsumhverfi:

• Vinnum eftir ISO 27001 fyrir stjórnkerfi upplýsingaöryggis.

• Öflugt starfsmannafélag sem heldur reglulega viðburði þ.á.m. reglulegar árshátíðarferðir erlendis með mökum.


Um okkur:

• Samsýn hefur verið starfandi frá árinu 1995.

• Höfum verið útnefnd “Framúrskarandi fyrirtæki” samfellt frá árinu 2013.

• Erum framsækið fyrirtæki á sviði hugbúnaðar, landupplýsingakerfa og stjórnkerfa fyrir vaktstöðvar á Íslandi.


Áhugasamir vinsamlegast sendið umsókn og ferilskrá á atvinna@samsyn.is. Öllum umsóknum verður svarað. Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristinn Guðmundsson, framkvæmdastjóri, í síma 570 0570.


Umsóknarfrestur er til 01.04.2023

Nýlegt
Eldra
bottom of page