Notendaráðstefnan í San Diego 2025
- Hildur Camilla Guðmundsdóttir
- May 15
- 1 min read

Esri Notendaráðstefnan verður haldin dagana 14.-18. júlí í San Diego.
Til að geta skráð sig á ráðstefnuna þarf að vera með Esri notendaaðgang og sá aðgangur tengdur við fyrirtækið inn á MyEsri.
Skráning fer fram hér:
Sjáðu hvað stofnandi Esri, Jack Dangermond, hefur að segja um ráðstefnuna:
Fyrir áhugasama þá verða eitthvað af fyrirlestrunum í boði á netinu. Allir sem eru með virkan viðhalds- eða áskriftarsamning geta sótt streymis-ráðstefnuna. Rétt ber að geta þess að það er einungis í boði fyrir skráða þátttakendur að fylgjast með fyrirlestrum beint eða nálgast upptökur síðar.
Bendum á heimasíðu ráðstefnunnar hjá Esri þar sem algengum spurningum er svarað:
Ef áhugi er á þá geta notendur geta sent verk sín í formi mynda af vefkortum, smáforritum eða öðrum afurðum til mögulegrar birtingar á ráðstefnunni.
Við hvetjum notendur til að senda inn slíkt efni og er hægt að gera það til 30. maí.